
Kennsluhjólin
Í bifhjólakennslu eru notaðar tvær megintegundir hjóla. Smærri bifhjól sem nemendur hefja nám á og svo stærri sem nýtt eru af þeim sem lengra eru komnir.
| Minni kennsluhjól |
| Í byrjun er kennt á smærri hjól sem þó eru að megin gerð sambærileg stærri hjólum. Þannig nær nemandinn tökum á stjórntækjum hjólsins og grunnaksturstækni á hjóli sem ekki mjög kraftmikið en á móti létt og mjög þægilegt í meðförum. |
| Stærri kennsluhjól |
| Eftir að grunndvallaratriðum í akstri bifhjóls hefur verið náð hefja nemendur akstur á stærra hjóli. Stærri hjólin eru þyngri og kraftmeiri og þjálfun í akstri þeirra er góður grunnur að öllum almennum bifhjólaakstri síðar, hvort sem stefnt er á akstur smærri eða stærri hjóla, eftir að nemandi stenst ökuprófið. |
| Sérbúnaður |
| Hjólin eru útbúin til kennslu og því eru hlífðargrindur á þeim og annað það sem ver þau hnjaski sem þau kunna að verða fyrir í kennslu. |
Nánar um hjólin


Suzuki VanVan - 125
Hjólið er í senn sérlega aðgengilegt og auðvelt í akstri. Stjórntækin eru einföld, auðvelt er að gangsetja hjólið og kúplingin er létt í notkun. Hjólið fyrirgefur byrjendum ónákvæmi og takmarkaðan skilning í upphafi og aksturinn er auðveldur en hjólið vegur aðeins 117 kíló og er á breiðum hjólbörðum. Gangur hjólsins er mjúkur og krafturinn nægur í öllum hefðbundnum akstri.
Tækniupplýsingar:
+ Vél - 1 strokkur - 125 rúmsentrimetrar
+ Gírar - 6
+ Þyngd - 117 kg
+ Hesthöfl - 12
+ Hámarkshraði - 100 km


Suzuki GS - 500
Hjólið hefur notið mikilla vinsælda í Evrópu um langt skeið. Þessi hjól eru í senn lipur og einföld, en nægilega kraftmikil og hafa í mörg ár verið vinsæl til bifhjólakennslu í bæði Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Mikill fjöldi nýtir GS 500 hjólið sem samgöngutæki og jafnvel atvinnutæki því það er vinsælt hjá mótorsendlum í miðborg Lundúna.
Tækniupplýsingar:
+ Vél - 2 strokkar - 487 rúmsentimetrar
+ Gírar - 6
+ Þyngd - 174 kg
+ Hesthöfl - 50
+ Hámarkshraði - 177 km

