Almenn ökuréttindi
Almenna bílprófið veitir réttindi til að stjórna:
Fólksbifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna og með sæti fyrir 8 farþega eða færri, auk ökumanns.
Sendibifreið með leyfða heildarþyngd 3.500 kg eða minna.
Fólks- eða sendibifreið með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd.
Fólks- eða sendibifreið með tengdan eftirvagn / tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd enda sé leyfð heildarþyngd beggja ökutækja 3.500 kg eða minna og leyfð heildarþyngd eftirvagnsins/tengitækisins ekki meiri en eigin þyngd dráttartækisins.
Dráttarvél,
vinnuvél,
léttu bifhjóli og
torfærutæki, s.s. vélsleða.

