Kerrupróf - BE réttindi
Þeir sem tóku bílprófið sitt fyrir 15. ágúst 1997, B réttindi, öðluðust einnig réttindi til að aka með stærri kerrur þ.e.a.s. BE réttindi.
Þeir sem tóku bílprófið sitt eftir 15. ágúst 1997 mega því einungis aka með minni kerrur / eftirvagna.
Þeir sem eru með almennt bílpróf, B réttindi hafa réttindi til að aka kerru / eftirvagn sem er:
- allt að 750 kg að skráðri heildarþyngd.
- Bifreið og vagn má vera allt að 3500 kg að skráðri heildarþynd. (dæmi ef bifreið er 2000 kg að skráðri heildarþyngd þá má aka með vagn sem er allt að 1500 kg að skráðri heildarþyngd)
Til að aka með stærri vagna þarf að afla sér BE réttinda en til þess þurfa viðkomand að vera orðin 18 ára og vera kominn með fullnaðarökuskírteini.
Námið skiptist í bóklegt og verklegt nám. Bóklega námið er 4 kennslustundir og verklega kennslan 4 kennslustundir að lágmarki.
Kerruprófið er einungis verklegt próf sem skiptist í munnlegar spurningar, verklegar æfingar á plani og svo akstur í umferð.
Kostnaður skiptist niður á:
- ökukennsla, verkleg og bókleg kr.46.000,-
- nýtt ökuskírteini kr 5.900,-
- prófgjald 9.500,-
Kostnaður samtals er því kr. 61.400,-

