Kostnaður

Kostnaður                                                    view_Mork_svadis_B28.xx.gif

Almenn ökuréttindi
Kostnaðurinn við ökunámið skiptist niður á nokkra þætti, sem eru:
+ Verkleg kennsla, frá 120.000,- til 180.000,- fer eftir tímafjölda
+ Ökuskóli 1 og 2 + námsgögn  29.000,-
+ Ökuskóli 3  36.000,-

+ Bráðbirgðaökuskírteini  3.300,-
+ Skriflegt próf  2.900,- ( pr. skipti )
+ Verklegt próf  8.000,- ( pr. skipti )
+ Mynd í ökuskírteini

Kostnaðurinn getur því verið aðeins breytilegur eftir einstaklingum en það sem skipti hvað mestu máli er að ökuneminn hafi tileinkað sér öruggan og fagmannlegan akstur og stofni hvorki sér né öðrum í hættu þegar út í umferðina er komið.
Algengast er að greitt sé jafnt og þétt fyrir námið, greitt á c.a. 4 til 5 tíma fresti. og svo gert upp þegar farið er í verklega ökuprófið.

Mótorhjólapróf
Kostnaðurinn við mótorhjólanámið:
+ Verkleg kennsla: hver tími kostar 7.000, samkvæmt námskrá þarf að taka 11-16 tíma en það er mjög einstaklingsbundið hvað þarf að taka marga tíma.
+ Ökuskóli + námsgögn  20.000,-
+ Nýtt ökuskírteini  5.900,-
+ Skriflegt próf  2.900,- ( pr. skipti )
+ Verklegt próf 8.000,- ( pr. skipti )
+ Ný mynd í ökuskírteini (val).

Kerruréttindi
Kostnaður skiptist niður á:
+ ökukennsla, verkleg og bókleg  46.000,-
+ nýtt ökuskírteini  5.900,-
+ prófgjald  9.500,-
+ Ný mynd í ökuskírteini (val)
Kostnaður samtals er því kr. 61.400,-